Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti (glúten) við neyslu á Íslandsnaut hamborgarasósu. Sósan inniheldur hveiti án þess að það komi fram á merkimiða vörunnar. Fyrirtækið Aðföng hefur innkallað vöruna af markaði.

Allar lotur eru innkallaðar með best fyrir dagsetningum fyrir 08-01-2021:

  • Vöruheiti: Íslandsnaut Hamborgarasósa, Smash Style
  • Strikamerki: 5690350194556
  • Nettómagn: 250ml
  • Dreifing: Varan var til sölu í verslunum Bónus og Hagkaupa fram til 23. september 2020.

Viðskiptavinum Bónus og Hagkaupa sem keypt hafa vöruna og hafa ofnæmi eða óþol fyrir hveiti (glúten) er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori hjá adfong.is.

Ítarefni

Skoða á mast.is