Lögreglan á Norðurlandi vestra lagði hald á tæplega 80 grömm af meintum kannabisefnum í söluumbúðum.

Tveir einstaklingar gistu fangageymslur vegna málsins en þeir voru stöðvaðir við akstur og mældist kókaín og kannabis í þvagi ökumannsins. Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnahunds við leit en efnin voru vandlega falin í vélarými bifreiðarinnar, að því er segir á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Þar segir einnig að fíkniefnahundur lögreglunnar, ásamt lögreglumönnum, hafa haft í nógu að snúast frá því um síðustu helgi en þá hafi sex ökumenn verið stöðvaðir í akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Mál er vörðuðu vörslu ávana- og fíkniefna hafi verið fimm talsins. Þar hafi einnig verið haldlögð meint kannabisefni ætluð til sölu og vógu þau ríflega 60 grömm. Þau efni komu til vegna nokkurra húsleita og leita í ökutækjum.

Á Facebook síðunni segir að fíkniefnamálum í embættinu hafi fjölgað gríðarlega og sé það verulegt áhyggjuefni.

Lögreglan minnir enn og aftur á fíkniefnasímann 800-5005, sem er gjaldfrjálst símanúmer, þar sem unnt er að koma á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.

Mynd: Lögreglan á Norðurlandi vestra