Opið er fyrir umsóknir um stofnframlög. Umsóknarfrestur rennur út 26. mars 2021.
Umsóknir skulu sendar í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar.

Eingöngu er heimilt að veita stofnframlög til eftirtalinna aðila:
1. Húsnæðissjálfseignarstofnana og lögaðila sem eru alfarið í eigu Dalvíkurbyggðar.
2. Lögaðila sem voru starfandi fyrir gildistöku laga um almennar íbúðir og uppfylltu skilyrði til að fá lán frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skv. þágildandi 37. gr. laga nr. 44/1998 um húsnæðismál.
3. Annarra lögaðila sem ráðherra hefur heimilað að verði veitt stofnframlag enda séu þeir ekki reknir í hagnaðarskyni og það samræmist tilgangi og markmiðum laga um almennar íbúðir.

Eingöngu heimilt að veita stofnframlög til umsækjenda sem hafa uppi áform um byggingu eða kaup á íbúðarhúsnæði sem ætlað er leigjendum sem eru undir þeim tekju- og eignamörkum sem tilgreind eru í 10. gr. laga nr. 52/2016 , 10. gr. um almennar íbúðir.
Dalvíkurbyggð veitir einungis stofnframlög vegna áforma sem eru í samræmi við markmið Dalvíkurbyggðar um húsnæðisuppbyggingu/húsnæðisáætlun að teknu tilliti til þarfar slíks leiguhúsnæðis í sveitarfélaginu.

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar . Með umsókn skal skila upplýsingum og gögnum í samræmi við reglur Dalvíkurbyggðar um stofnframlög.

Forsenda fyrir veitingu stofnframlags Dalvíkurbyggðar er að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veiti umsækjanda jafnframt stofnframlag ríkisins innan sex mánaða frá samþykki á umsókn um stofnframlag. Ákvörðun um veitingu stofnframlags Dalvíkurbyggðar fellur niður án tilkynningar ef þetta skilyrði er ekki uppfyllt.
Umsækjendur um stofnframlög Dalvíkurbyggðar skulu því einnig sækja um stofnframlög ríkisins hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Staðfesting frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að umsókn hafi jafnframt borist stofnuninni skal berast eigi síðar en 7 dögum eftir að auglýstur umsóknarfrestur Dalvíkurbyggðar rennur út. Berist staðfestingin ekki innan þess tíma er heimilt að synja umsókn.

Við afgreiðslu umsókna skal m.a. lagt mat á eftirfarandi atriði:
1. Hvort umsókn um stofnframlag samræmist ákvæðum laga og reglugerða um veitingu stofnframlaga.
2. Hvort verkefnið rúmist innan fjárheimilda skv. fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar og hvort áhrif veitingar stofnframlaga á rekstur, efnahag og sjóðstreymi Dalvíkurbyggðar sé í samræmi við forsendur áætlunar.
3. Hvort það húsnæði sem á að byggja eða kaupa teljist hagkvæmt og uppfylli þarfir íbúa þannig að ásættanlegt sé.
4. Hvort þörf er á leiguhúsnæði af þeirri stærð og gerð og í því hverfi sem húsnæðið er staðsett fyrir þann hóp sem húsnæðinu er ætlað að þjóna.
5. Hvort áætlað leiguverð sé í samræmi við greiðslugetu væntanlegs leigjendahóps.
6. Hvort fjármögnun útgjalda vegna verkefnisins, m.a. vegna framkvæmda, rekstrar, reglulegs viðhalds, endurbóta og endurgreiðslu lána og stofnframlaga, sé traust og hvort fjármögnun hafi verið tryggð með fullnægjandi hætti.
7. Hvort fyrirliggjandi gögn, s.s. áætlun um stofnvirði, viðskiptaáætlun og áætlað leiguverð, séu traust og raunhæf og hvort líklegt sé að þessar áætlanir gangi eftir þannig að verkefni nái tilgangi og markmiði laga og áætlunum sveitarfélagsins.
8. Hvort umsókn samræmist að öðru leyti tilgangi og markmiði laga og húsnæðisáætlunar Dalvíkurbyggðar.
Heimilt er að taka mið af efnahagslegum aðstæðum í samfélaginu og áhrifum byggingarstarfsemi á samfélagið og hagkerfið.

Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknarfrestur um stofnframlög rennur út 26. mars 2021.

Heimilt er að synja umsókn hafi nauðsynleg gögn ekki borist innan auglýsts umsóknarfrests.

• Upplýsingar um stofnframlög ríkisins.

Skoða á vef Dalvíkurbyggðar