Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningar-og viðurkenningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2019. Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. mars nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á „Mín Dalvíkurbyggð/umsóknir“.

Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. Slóðir fyrir Menningarstefnuna og reglur sjóðsins er hægt að finna inn á „Umsóknir“ á Mín Dalvíkurbyggð.

Styrkþegar ársins 2018 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.

Verkefnin sem sótt er um styrki til skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2019.

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir sveitarstjóri, Katrín Sigurjónsdóttir í síma 460 4900, netfang: katrin@dalvikurbyggd.is