Saga íslenskra sjókvenna 

Opin sögustund á vegum Kvenna í Sjávarútvegi, Innviðaráðuneytisins og Sjávarklasans

31. mars , kl 17:00, Húsi Sjávarklasans, Grandagarði 16.

Félag kvenna í sjávarútvegi, Innviðaráðuneytið og Sjávarklasinn munu standa fyrir sögustund um íslenskar sjókonur en Margaret Willson, mannfræðingur og aðstoðarprófessor við Washington háskóla hefur rannsakað sögu þeirra og skrifaði bókina „Seawomen of Iceland“ og fljótlega kemur út önnur bók eftir hana um Þuríði formann í kjölfar áralangrar rannsóknar. Hún mun koma og fræða okkur um sögu þeirra kvenna sem réru til sjós og stýrðu sínum knerri frá landnámi og fram á 19. öld en þá hófst vélvæðing báta og hurfu konur af sjó samhliða tækniframförum  og breyttu  viðhorfi til stöðu þeirra. Sjaldan er getið þessarra kvenna í söguheimildum en konur voru mikilvægur hlekkur í að afla sér og sínum lífsviðurværis úr matarkistu Hafsins. 

Þrátt fyrir aldalanga sögu íslenskra sjókvenna hallar verulega á hlut þeirra á sjó. Nægir að nefna að aðeins 0,3% þeirra sem lokið hafa vélstjórnarnámi eru konur og 1% þeirra sem lokið hafa námi í skipstjórn.

Umræður og léttar veitingar í fundarlok, salurinn er staðsettur í Granda Mathöll.

Fundurinn er opinn almenningi og fjölmiðlum.