Sendinefndir strandríkja við norðaustur Atlantshaf hittust í London í þessari viku til að ræða stjórn veiða á norsk-íslenskri síld og kolmunna.

Strandríkin voru sammála um að heildarveiðar skuli ekki vera umfram vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og var því samþykkt að setja heildaraflamark sem er 598.588 tonn fyrir síld og 752.736 tonn fyrir kolmunna. Jafnframt var ákveðið að fela vísindamönnum strandríkjanna að uppfæra samantekt frá 2013 um dreifingu kolmunna.

Ekki náðist samkomulag um skiptingu heildaraflans milli strandríkjanna, sem öll eru sammála um að mikilvægt sé að leggja þunga áherslu á að reyna að ná niðurstöðu um það ágreiningsmál. Án slíks samkomulags er ljóst að raunverulegar veiðar verða umtalsvert meiri en sem nemur vísindaráðgjöfinni.

Ákveðið var að halda samningafundi um skiptingu veiða í upphafi næsta árs, með það að markmiði að samkomulag geti leitt til sjálfbærra veiða strax árið 2022.

Mynd/Golli