Nemendur 6.-10. bekkjar afhentu skólabræðrum sínum, þeim Sigurbirni Boga og Noah styrkupphæð sem safnaðist í áheitahlaupi ÍSÍ.

Nemendur hlupu samtals 720 kílómetra og söfnuðu með áheitum 1.050.750 Kr. sem skiptist jafnt á milli þeirra félaga eða 525.375 Kr. á hvorn.

Strákarnir tóku sjálfir á móti styrkjunum ásamt sínu fólki.

Nemendum var síðan boðið upp á kökusneið í þakklætisskyni fyrir framtakið.

Hér má sjá fleiri myndir frá deginum 

Mynd/Grunnskóli Fjallabyggðar