Opnir hreyfitímar í íþróttahúsum fyrir íbúa Fjallabyggðar, 30 ára og eldri.

Heilsueflandi Fjallabyggð býður íbúum í opna hreyfitíma í íþróttahúsum Fjallabyggðar í mars. Um er að ræða fjögur skipti í hvoru húsi ef þátttaka verður næg. Í boði verður fjölbreytt hreyfing og góður félagsskapur.

Á Siglufirði: Þriðjudagar 7. mars, 14. mars, 21. mars og 28. mars  kl. 17:30 – 18:30,
Leiðbeinandi: Lísebet Hauksdóttir íþróttakennari.

Í Ólafsfirði: miðvikudagar 8. mars, 15. mars, 22. mars og 29. mars kl. 17:00 – 18:00
Leiðbeinandi: María Bjarney Leifsdóttir íþróttakennari og Hallgrímur Þór Harðarson íþróttakennari

Allir íbúar 30 ára og eldri velkomnir – enginn aðgangseyrir.

Þátttakendur þurfa að vera í hreinum innanhúss eða strigaskóm.  

Þátttaka í hreyfingunni er á ábyrgð hvers og eins.


Stýrihópur um heilsueflandi samfélag.