• 1 pakki Royal vanillubúðingur
  • 1 bolli mjólk
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 peli rjómi (2,5 dl.)
  • 200 g rjómaostur
  • 1 bolli flórsykur
  • 24 oreo kexkökur (gott að notai 32, sem eru 2 kassar)

-Þeytið saman búðingsduftið, mjólkina og vanilludropana og setjið í ískáp í 5 mínútur.

-Hrærið saman flórsykri og rjómaosti í annari skál.

-Þeytið rjómann.

Blandið þessu öllu saman í eina skál.

Myljið oreokexið (í matvinnsluvél eða með frjálsri aðferð!).

Setjið til skiptist í skál oreokex og ostakökublönduna, endið á kexinu.

Geymið í frysti og takið út 1,5 klst. áður en kakan er borin fram.


Uppskrift: 
Ljúfmeti og lekkerheit