Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður til opins fundar um orkuskipti í Múlabergi á Hótel KEA Akureyri, þriðjudaginn 16. maí kl. 17:00.

Á fundinum verður lögð áhersla á hlutverk vindorku.

Sambærilegir fundir hafa nú þegar verið haldnir víðsvegar um landið.

Ráðherra skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp til að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ. á m. um lagaumhverfi og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum.

Starfshópurinn hefur nú skilað stöðuskýrslu til ráðherra og verða niðurstöður hennar til umræðu á fundinum og fulltrúar starfshópsins til svara um efni skýrslunnar.

Stöðuskýrslan dregur saman helstu álitaefni sem ramma inn umræðuna og boðar ráðherra þess vegna til þessara opnu funda þar sem almenningur fær tækifæri til þess að kynna sér stöðuskýrsluna og eiga beint samtal við starfshópinn og ráðherra, áður en hópurinn skilar formlegum niðurstöðum og tillögum að stefnumótun ríkisins í þessum efnum.