Sjötti febrúar er merkisdagur í sögu leikskóla á Íslandi.

Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök.

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefur svo verið gert um langt árabil. Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

“Við hér á leikskólanum ákváðum auðvitað að taka þátt í þessum degi.
Við byrjuðum þann 8. janúar í þemavinnu um nærumhverfið okkar. Allar deildar tóku þátt í að vinna með nærumhverfið. Við á Núpaskál ákváðum að taka fyrir Leikskólann okkar.

Markmiðin með verkefninu voru:
Að vekja börnin til umhugsunar um leikskólann okkar
Að efla virðingu barnanna fyrir leikskólanum
Að leyfa börnunum að upplifa leikskólann á sem fjölbreyttastan máta á sínum forsendum.
Að börnin fengju að skoða og kynnast leikskólabyggingunni á sem fjölbreyttasta máta.

Með þessum markmiðum vildum við að börnin yrðu meðvitaðri um sögu leikskólabyggingarinnar. Til þess að geta náð þessum markmiðum reyndum við að vekja áhuga og forvitni barnanna til að rannsaka umhverfið sitt. Við fórum í nokkrar vettvangsferðir um leikskólalóðina og var hún skoðuð í krók og kima. Þá fórum við og töldum glugga og hurðir og svo var farið í það að búa til leikskólann.

Í byrjun söfnuðum við að okkur verðlausum efnivið, mjólkurkössum og dagblöðum, því leikskólinn er búinn til úr pappamassa.

Þemavinnunni á öllum deildum lauk svo með sýningu á verkefnunum á degi leiksólans 6. febrúar, þegar við buðum mömmu og pabba, afa og ömmu til okkar á sýningu”.

Aðsent