Ríkislögreglustjóri hefur, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, aflýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna norðan áhlaupsins sem gekk yfir landið nú í vikunni.
Ljóst er að það úrkomumagn sem hefur komið á Norðurlandi síðustu daga, sérstaklega í Ólafsfirði og Út-Kinn, er langt umfram það sem venjulega er við að búast. Þrátt fyrir það hafa ekki orðið neinar hamfarir af völdum veðursins, svo sem aurskriður í og við byggð.
Þrátt fyrir að óvissustigi hafi verið aflétt, þýðir það ekki að skriður geti ekki fallið, en líkurnar á því hafa dvínað verulega. Almannavarnir hvetja íbúa, sem og aðra, til að fylgjast áfram vel með breytingum í landslaginu í kringum sig og tilkynna ef einhverjar breytingar verða vart.
Viðvaranir sem gefnar voru út fyrir íbúa á skilgreindu svæði í Ólafsfirði fyrradag falla jafnframt úr gildi.
Mynd/Slökkvilið Fjallabyggðar