Í byrjun júní eru fyrirhugaðar breytingar á póstþjónustu á tíu stöðum á landinu. Til stendur að loka fimm samstarfspósthúsum og jafn mörgum pósthúsum í eigin rekstri. Nú verða sendingar afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum á eftirfarandi stöðum: Hvammstanga, Siglufirði, Dalvík, Ólafsfirði, Búðardal, Grundarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Breiðdalsvík og Neskaupstað.  

Á flestum þessara staða er þegar komið upp póstbox en í Búðardal, Ólafsfirði, á Breiðdalsvík og Siglufirði verða sett upp póstbox í næsta mánuði. Kjartan Flosason, forstöðumaður pósthúsa, segir að lögð sé áhersla á að þróa þjónustu í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda. „Dregið hefur úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi er lagt upp úr að þróa annars konar lausnir. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru þeir sem nota póstbox. Nú er meira að segja líka hægt að póstleggja sendingar í póstbox. Eftir sem áður eru póstboxin opin árið um kring allan sólarhringinn,“ segir Kjartan.  

Póstbíllinn verður líka á ferðinni á þessum stöðum. „Nú verður boðið upp á heimsendingarþjónustu á Hvammstanga, Dalvík, Breiðdalsvík og í Ólafsfirði. Þess má geta að fyrir þessar breytingar var sú þjónusta ekki í boði,“ segir Kjartan. 

Rætt hefur verið við starfsfólkið á pósthúsunum sem verður lokað að sögn Kjartans. „Breytingarnar hafa áhrif á sex stöðugildi. Nokkrum starfsmönnum var boðið annars konar starf eða flutningur. Ég vil þakka því góða starfsfólki sem nú lætur af störfum og óska því góðs gengis í næstu verkefnum.“