Hann Pétur Arnar var að gefa út lag núna 12. febrúar og við á Trölla flytjum fréttina eins og við höfum gert af og til frá hans fyrstu sjálfstæðu útgáfu árið 2018 er hann sendi frá sér lögin “Vonarstjarna” og “Gengur betur næst”.

Lagið heitir “Virkur í kommentum”, og segir höfundur þar að vissu leyti kveða við nýjan tón:
“Sko, ég hef alltaf haft tilhneigingu til að gluða vel rokkuðum rafmagnsgítar á jafnvel rólegustu ballöðu, en í þetta skiptið er það “riffið sem ræður” ferðinni og þetta er líklega það þyngsta sem ég hef samið hingað til” segir Pétur sposkur á svip. “Og það er meira af svo góðu á leiðinni”.

Lagið kveður hann fjalla um þessa týpu sem lætur alls konar eitur frá sér á netinu í kommentum en felur sig bakvið tölvuskjá og lyklaborð. “Við höfum öll séð slík skrif og kannski höfum við flest á einhverjum tímapunkti gleymt okkur á samfélagsmiðlum og látið flakka miður vönduð orð sem geta sært?
-Kannski hef ég sjálfur jafnvel verið þessi týpa?”
segir Pétur. Hugmyndin er kannski að vekja fólk til umhugsunar um það að orð geta meitt, haft afleiðingar og að “aðgát skal höfð í nærværu sálar”.

Lagið má finna á Spotify og öllum helstu streymisveitum og netverslunum.

En það er að sjálfsögðu Trölli sem ríður á vaðið og frumflytur lagið !

Á bassa spilar aldavinur Péturs, Ásgeir Ingi Magnússon, “Veistu, húðirnar lemur Nikola nokkur Dušmanić frá Serbíu og eru trommur teknar upp í Ezoterik Studios, sem hann rekur sjálfur. Ég fann hann í gegnum Fiverr.com frílansara-miðlun og hefur hann spilað fyrir mig áður” segir Pétur.

Það er Pétur sjálfur sem syngur, spilar á rafgítara sér um útsetningu, upptökustjórn, hljóðblöndun og masteringu.. “Æ, það er bara ódýrara, ég er pínulítið kontról frík með lögin mín og á auðveldara með að spila hlutina sjálfur en að útskýra fyrir öðrum það sem ég heyri ljóslifandi” segir hann hálf-vandræðalegur á svipinn.

Eitthvað að lokum, Pétur ?
“Ég þakka Trölla hjartanlega fyrir mig og hlakka til að heyra hvað ykkur og hlustendum ykkar finnst um lagið? -Og auðvitað væri gaman að heyra það sem oftast!”

Við þökkum Pétri fyrir innsendinguna. Maður veit aldrei hvað hann sendir frá sér næst! Hann hvíslaði því að okkur að blús með mögulega “heimsins fyrsta “hrotusólói” væri að koma út á mánudaginn, “en ekki segja neinum :-)”.