Í gær, sunnudaginn 28. ágúst, var haldin hátíðarguðsþjónusta í Siglufjarðarkirkju vegna 90 ára vígsluafmælis hennar.

Biskup Íslands, frú Agnes Sigurðardóttir, prédikaði, einnig voru þar Sigurður Ægisson sóknarprestur, Jón Ármann Gíslason prófastur, Bragi J. Ingibergsson og Gísli Gunnarsson verðandi vígslubiskup á Hólum. Vigfús Þór Árnason og Brag j. Ingibergsson lásu ritningarlestra.

Guðsþjónustan var tekin upp og henni verður útvarpað á Rás 1 eftir hálfan mánuð eða svo.

Kaffiveitingar voru í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu, í boði Systrafélagsins og var þar mannmargt.

Meðfylgjandi myndir tók Kristján L. Möller

Siglufjarðarkirkja er í Siglufjarðarprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Kirkja hefur verið á Siglufirði frá 1614, en var áður á Siglunesi.

Steinsteypukirkjan, sem nú stendur, var byggð 1932. Allmikið húsrými er á kirkjulofti og þar var gagnfræðaskóli Siglufjarðar starfræktur um alllangan tíma. Safnaðarheimili var vígt á loftinu árið 1982. Arne Finsen, arkitekt, teiknaði kirkjuna en Einar Jóhannsson og Jón Guðmundsson voru byggingameistarar.

Sverre Tynes var yfirsmiður. Steint gler var sett í glugga kirkjunnar 1974. María Katzgrau teiknaði þá en Oidtmannbræður í Þýskalandi gerðu þá. Meðal góðra gripa kirkjunnar má nefna altaristöfluna frá 1726 (síðasta kvöldmáltíðin) og aðra frá 1903, sem sýnir Krist í grasagarðinum eftir Anker Lund. Þriðja altaristaflan með mynd af Kristi, þar sem hann birtist sjómönnum í hafsnauð, er eftir Gunnlaug Blöndal. Skírnarsárinn er eftir Ríkharð Jónsson.

Fróðleikur um Siglufjarðarkirkju/ is.nat.is