Matvælastofnun varar við neyslu á Sanders saltkaramellu með mjólkursúkkulaði, vegna þess að varan gæti innihaldið aðskotahlut (plast).
Costco hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi Best fyrir dagsetningar.
Vörumerki: Sanders
Vöruheiti: Milk Chocolate Sea Salt Caramels
Þyngd: 1,02 kg
Best fyrir: b.f. 27.02.2024 eða fyrr
Innflytjandi: Costco Wholesale Iceland ehf.
Framleiðsluland: USA
Dreifing: Verslun Costco, Kauptún 3
Costco biður þá viðskiptavini sem enn eiga vöruna að farga henni eða skila henni gegn endurgreiðslu í verslun sína í Costco Kauptúni 3, Garðabæ.
Ítarefni:
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness