Þátturinn verður sendur út beint frá Studíó 7 á Englandi frá kl. 17 í dag og þá mun Oskar Brown bjóða hlustendum FM Trölla í hressilega tónlistarveislu þar sem fara saman fortíðarperlur og framtíðarsmellir.

Á meðal flytjenda í þættinum í dag eru: Adam & The Ants, Bigger, Egó, Fergus, GDRN & Birnir, Kendra Erika, og Richard Ashcroft & Liam Gallagher.

Endilega stilltu á FM Trölla frá kl. 17 í dag, þú sérð ekki eftir því. 

Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is