Rabarbarapæ
- 500 gr rabarbari (ég nota hann frosinn og læt hann ekki þiðna áður)
- 2 msk kartöflumjöl
- 0,5 – 0,75 dl kanilsykur
Deig
- 3,5 dl hveiti
- 1 dl kókosmjöl
- 1 dl sykur
- 150 gr smjör eða smjörlíki
Hitið ofninn í 200°. Skerið rabarbarann í 1/2 cm þykkar sneiðar og leggið í botninn á eldföstu móti. Stráið kartöflumjöli og kanilsykri yfir.
Blandið hveiti, sykri og kókosmjöli í skál. Skerið smjörið í litla bita og bætið í skálina. Blandið smjörinu saman við þurrefnin með höndunum þar til það myndast litlir kögglar og gróf mylsna. Dreifið deiginu yfir rabarbarann og bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 20 mínútur.

.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit