Í dag kl. 18 mun félagið halda rafrænan fund fyrir félagsmenn á Dalvík og í Hrísey þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúa félagsins og varamanni hans. Fundurinn mun byrja kl. 18:00 og verður túlkaður á pólsku.
Félagsmenn sem ætla að mæta á fundinn þurfa að skrá sig hér fyrir neðan til að hægt verði að senda viðkomandi félagsmanni hlekk á fundinn. Leiðbeiningar munu fylgja með í þeim pósti.
Á morgun verður eins fundur fyrir félagsmenn í Fjallabyggð og á miðvikudaginn fyrir félagsmenn á Grenivík.
Dagskrá fundarins
- Kosning svæðisfulltrúa og varamanns.
- Kynning á Gallup könnun félagsins
- Önnur mál.
- Mánudagur 25. janúar
- Hrísey og Dalvík – Skráning á fundinn
- Þriðjudagur 26. janúar
- Fjallabyggð – Skráning á fundinn
- Miðvikudagur 27. Janúar
- Grenivík – Skráning á fundinn