Bilun í borholu hefur valdið skertu framboði á heitu vatni í Siglufirði og eru íbúar hvattir til að fara sparlega með heita vatnið á meðan unnið er að viðgerð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rarik, þar sem fram kemur að búist sé við að viðgerð ljúki klukkan 16.00 þriðjudaginn 3. mars 2026.

Vegna stöðunnar hefur stjórnsýsla Fjallabyggðar tekið ákvörðun um að loka heita pottinum í Sundhöll Siglufjarðar þar til viðgerð á biluninni er lokið. Aðrar starfsemi sundhallarinnar heldur óbreytt áfram eftir því sem kostur er, en íbúar og gestir eru beðnir um sýna skilning á tímabundnum óþægindum.

Heiti potturinn í Sundhöll Siglufjarðar

Heiti potturinn í Sundhöll Siglufjarðar er lokaður tímabundið vegna bilunar í borholu sem hefur skert framboð á heitu vatni.
Mynd: fjallabyggd.is

Í tilkynningu Rarik segir að unnið sé að greiningu og viðgerð á borholunni og að markmiðið sé að koma hitaveitunni í eðlilegt horf eins fljótt og auðið er. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð fyrirtækisins í síma 528 000 og jafnframt má nálgast kort af áhrifasvæði á vef Rarik.