Regnbogabekkur hefur verið tekinn í gagnið á Ingvildartorginu okkar. Bekkurinn er í okkar skærustu regnbogalitum og hefur þann hæfileika að þeir sem á hann líta brosa út í annað. Útlit bekkjarins er hugmynd starfsmanna Eigna- og framkvæmdadeildar og með þessari framkvæmd er hinsegin málefnum gert hátt undir höfði og stuðningur sýndur í verki við mannréttindi og margbreytileika mannlífsins.
Bekkurinn sem var á staðnum, var færður inn á Ingvildartorg
Eins og glöggir muna var regnbogagata tekin í gagnið á Dalvík í fyrra í tilefni þess að hinsegin dagar í Reykjavík voru heiðursgestir Fiskidagsins mikla. Þetta verkefni er því ánægjulegt framhald af því.
Af dalvikurbyggd.is