Fjárgöngur hófust í Fjallabyggð föstudaginn 9. september og réttað er á fjórum stöðum stöðum: Siglufjarðarrétt, Héðinsfjarðarrétt, Ósbrekkurétt og Reykjarétt.

Um helgina verður réttað í Ósbrekkurétt í Ólafsfirði, föstudaginn 16. september og lagardaginn 17. september.

Göngur og réttir í Fjallabyggð árið 2022 verða eftirfarandi:

  • Siglufjarðarrétt í Siglufirði: Föstudaginn 9. september og laugardaginn 10. september.
  • Héðinsfjarðarrétt í Héðinsfirði:  Sunnudaginn 11. sept.
  • Ósbrekkurétt í Ólafsfirði: Föstudaginn 16. september og laugardaginn 17. september. 
  • Reykjarétt í Ólafsfirði: Föstudaginn 30. september.

Rétt er að vekja athygli á því að dagsetningar gætu breyst ef veðurfar leyfir ekki fjárrekstur. 

Sjá nánar um göngur og réttir víðsvegar á landinu: HÉR