Þann 17. maí sl. tók Ringóhópur frá Fjallabyggð þátt í Ringómóti á Akureyri. Mótið lukkaðist afar vel og var stemningin með eindæmum góð. Þátttakendur lýstu yfir mikilli ánægju með daginn og sögðust hafa tekið með sér dýrmæta reynslu og nýja þekkingu frá mótinu.

Ringó hefur notið vaxandi vinsælda og er einstaklega skemmtileg íþrótt sem hentar öllum óháð reynslu eða bakgrunni. Hún sameinar hreyfingu, samveru og gleði á einstakan hátt.

Næsta markmið hópsins er þátttaka á Landsmóti 50+ sem fram fer í Fjallabyggð dagana 27.–29. júní næstkomandi. Þar verður margt í boði og hvetjum við alla til að kynna sér keppnisgreinar mótsins, úrvalið er fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Við hvetjum einnig áhugasama til að kynna sér Ringó, íþrótt sem sannarlega sameinar gleði og hreyfingu. Æfingar fara fram í Íþróttamiðstöðinni á Siglufirði mánudaga kl: 17:00.

Heimild og mynd: Hátindur Fjallabyggð 60+