Forvarnarfulltrúi hefur ekki verið starfandi hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra nú um nokkurra ára skeið.

Lögreglan skynjaði þörfina fyrir slíkan starfsmann og hafa fengið ákall frá samfélaginu um að endurvekja þessa starfsemi.

Nú hefur verið ákveðið að setja einn lögreglumann í þetta verkefni og hefur Silja Rún Reynisdóttir valist til starfans. Silja hefur starfað sem lögreglumaður hjá embættinu á Akureyri síðan árið 2016, hún lauk diplómagráðu í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2018, ásamt því að hafa lokið B.A gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands.

Forvarnarstarfið er á byrjunarreit, þótt lögreglan reyni auðvitað að sinna ýmsum forvörnum meðfram öðrum störfum.

Lögreglan segir að “markmiðið nú er að auka fræðslu og forvarnarstarf þar sem þörf er á. Verkefnin eru reyndar óþrjótandi og því áríðandi að velja vel þau verkefni sem fá mesta áherslu. Þar erum við nú að horfa m.a. á ýmsa misnotkun samfélagsmiðla og kynferðisbrot.

Erfitt getur verið að meta árangur af forvarnarstarfi en við erum þess fullviss að gildi svona vinnu sé mikið fyrir samfélagið.

Með góðu forvarnarstarfi verður lögreglan sýnilegri í samfélaginu og tengsl við íbúa aukast. Lögreglan telur mikilvægt að eiga í góðum samskiptum við íbúa og félagasamtök á svæðinu. Við bindum því miklar vonir við þessa vinnu”.

Hægt er að hafa samband við Silju Rún Reynisdóttur með því að senda tölvupóst á srr01@logreglan.is eða hringa í síma 444-2850.