Eitt af vorverkum rótarýfólks í Ólafsfirði er að hengja upp myndasöfn þau sem ekki standa uppi allt árið og var á dögunum eitt slíkt; myndir Svavars Berg Magnússonar af aurskriðunum sem féllu á Ólafsfjörð 28. ágúst 1988 hengt upp á suðurhlið Tjarnarborgar.
Afleiðingar skriðanna sjást þar glögglega frá hinu ýmsu sjónarhornum og einnig sést umfangsmikið hreinsunarstarf sem framkvæmt var strax og óhætt þótti að vera á ferli á brekkunni.














Við Íþróttamiðstöðina má sjá annað myndasafn klúbbsins, sem er tileinkað Leifrti og velmektar árum þess félags.
Á sama tíma var annar hópur vaskra rótarýfélaga að búa skíðastökkpallinn kláran undir málningu. Nokkrum dögum seinna var hann málaður og lítur hann nú býsna vel út þó enn eigi eftir að bera á tréverkið.
Fjallabyggð skaffar málninguna en rótarýfélagar vinnuna, sáttmáli sem e.t.v. mætti vera víðar.
Texti: KHG
Myndir: KHG. Alda María, Sunna Eir og Þorsteinn Þorvaldsson