Laust fyrir klukkan 14:30 var tilkynnt um að rúta hefði farið út af og oltið á hliðina á Ólafsfjarðarvegi skammt frá Múlagöngum, Ólafsfjarðar megin.

25 farþegar voru í rútunni auk ökumanns og fararstjóra.

Engin alvarleg slys urðu á fólki.Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningalið var sent á vettvang.

Fjöldahjálparstöð var opnuð í Menntaskólanum á Tröllaskaga, þangað sem farþegar rútunnar voru fluttir og starfsfólk Rauðakrossins hlúði að þeim.

Lögregla vinnur að rannsókn að tildrögum slyssins á vettvangi.

Mynd/Lögreglan á Norðurlandi eystra