Matvælastofnun varar þá sem hafa keypt Freyju páskegg nr. 6 vegan vegna þess að sælgæti (hlaup) inn í eggjunum eru ekki vegan.
Freyja Sælgætisgerð hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) stöðvað sölu og innkallað Dökk vegan Sælkera páskegg nr. 6 vegna þessa.
Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslu:
- Vörumerki: Freyja
- Vöruheiti: Dökkt vegan sælkera páskaegg.
- Geymsluþol: Allar dagsetningar
- Nettómagn: 340g
- Strikamerki: 5690545004202
- Framleiðandi: Freyja sælgætisgerð, Kársnesbraut 102-104
- Dreifing: Verslanir um allt land
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna geta skilað í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Varan er ekki hættuleg til neyslu en fyrir mistök eru innihaldsefni í sælgætinu sem eru inni í eggjunum úr dýraríki eins og gelatín og karmín.
Ítarefni:
- Fréttatilkynning frá Freyju sælgætisgerð ehf.
- Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirlitinu HEF
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar
- Neytendavakt Matvælastofnunar