Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði hefur sölu á Neyðarkallinum 2022 í dag, miðvikudaginn 2. nóvember.

Björgunarsveitin biður bæjabúa um að taka vel á móti sölumönnum.

Æskilegt er að þeir sem geta stutt við þá hafi pening tiltækan, en sveitin er aðeins með tvo posa á ferðinni.

Neyðarkall björgunarsveitanna á sér orðið langa sögu að baki þar sem það hófst 2006 og er því um að ræða 16. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall.

Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.