Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi frá Matfugli merktum Ali, Bónus eða FK vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vöruheiti: Ali, Bónus, FK
- Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
- Lotunúmer: 011-21-34-5-29 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar, marineraðar kjúklingabringur),
- Pökkunardagur: 29.09.2021 – 01.10.2021
- Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Kassinn.
Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.