Sameiginleg guðsþjónusta prestakallanna í Fjallabyggð fer fram í Ólafsfjarðarkirkju sunnudagskvöldið 22. febrúar klukkan 20.

Guðsþjónustan er samstarfsverkefni prestakallanna í Fjallabyggð og verður hún haldin í Ólafsfjarðarkirkju að þessu sinni. Kirkjukórar Ólafsfjarðar og Siglufjarðar leiða söng undir stjórn og með undirleik organistans Ave Kara Sillaots.

Þjónustu annast sr. Sigurður Ægisson og sr. Stefanía Steinsdóttir.

Safnaðarfólk og aðrir velunnarar kirkjunnar eru hvattir til að mæta og eiga saman stund í helgihaldi og tónlist.