Námskeið á vegum Akureyrarbæjar fyrir foreldra þar sem ítarlega er fjallað um áhrif skilnaðar á fjölskyldu.
Það er ekki skilnaðurinn sjálfur sem veldur mestum skaða, heldur það hvernig staðið er að honum gagnvart börnunum.
Velferðarsvið Akureyrarbæjar býður upp á sérhæfða skilnaðarráðgjöf til foreldra með það fyrir augum að lágmarka áhrif skilnaðar á börn og ungmenni. Þjónustan er öllum að kostnaðarlausu. Fyrirhugað er að halda námskeið 11., 17. og 24 október n.k. frá kl. 16:30 – 19:30. Staðsetning: Glerárgata 26, 1. hæð.
Umsjónarmenn námskeiðs:
Halldóra Kristín Hauksdóttir – Lögmaður Velferðarsviðs
Katrín Reimarsdóttir – Félagsráðgjafi á Velferðarsviði
Skráning fer fram í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.
Sjá einnig: www.samvinnaeftirskilnad.is
Mynd eftir Rod Long á Unsplash