Ákveðið hefur verið að seinka upphafi skóladags nemenda í 8.–10. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar næsta skólaár, 2025–2026.
Skóladagurinn mun hefjast klukkan 8:50 í stað 8:10, eins og verið hefur. Nemendur á Siglufirði munu geta nýtt sér skólarútu sem fer klukkan 8:30 í stað 7:40 áður.
Ákvörðunin byggir á niðurstöðum rannsókna sem sýna að margir unglingar fá ekki nægan svefn og að hópur þeirra sem sefur of lítið hefur farið stækkandi á undanförnum árum, sem er áhyggjuefni. Vísindalegar rannsóknir benda til skýrra tengsla milli svefnskorts og andlegrar líðanar ungmenna.
Áður en ákvörðunin var tekin var gerð könnun meðal foreldra og forráðafólks á unglingastigi skólans. Niðurstöður könnunarinnar sýndu að mikill meirihluti var fylgjandi því að seinka skóladeginum.
Seinkun á upphafi skólans hefur ekki veruleg áhrif á lengd skóladagsins. Gert er ráð fyrir að nýta upplýsingatækni og fjarkennslu að hluta til, líkt og þegar hefur verið gert og auk þess sem einn fjarkennslutími bætist við á viku. Þannig verður einungis einn dagur í viku, fimmtudagar, þar sem nemendur verða í skólanum til klukkan 15:20.
Fyrirkomulagið verður hluti af tilraunaverkefni og verður metið að nýju vorið 2026. Þá verður skoðað hvernig til hefur tekist og hvort breytingin skili tilætluðum árangri.
Markmiðið með breytingunni er að stuðla að bættri líðan og heilsu nemenda og að hún verði þeim til hagsbóta.