Cecilie Annette Willoch, sendiherra Noregs á Íslandi kom í heimsókn til Fjallabyggðar á sunnudaginn og naut meðal annars viðburða á Þjóðlagahátíð, heimsótti Síldarminjasafnið og fyrirtæki í Fjallabyggð.

Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar og Anna Lind Björnsdóttir verkefnastjóri SSNE á Tröllaskaga tóku vel á móti henni.

Á mynd frá vinstri:
Cecilie Annette Willoch, Sigríður Ingvarsdóttir og Anna Lind Björnsdóttir.

Mynd/Fjallabyggð