Opið er fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2021. Umsóknarfrestur rennur út í dag 28. október 2020.
Athugið að umsóknarfrestur vegna annarra styrkja eða framlaga var til og með 18. október.
Bæjarráð auglýsir eftir umsóknum:
- um styrki til menningarmála
- um styrki til hátíðarhalda
- um styrki til reksturs safna og setra
- um styrki til fræðslumála
- um styrki til félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts 2021
- um aðra styrki eða framlög vegna annarrar starfsemi ársins 2021
Einungis er hægt að sækja um rafrænt inni á vefsíðu Fjallabyggðar www.fjallabyggd.is – Rafræn Fjallabyggð.
Nota þarf rafræn skilríki við umsóknina. Athugið að vista umsókn reglulega á meðan á vinnslu stendur.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is eða hringja í síma 464-9100.
Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála
Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til fræðslumála
Reglur Fjallabyggðar um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
Leiðbeiningar:
Hafi umsækjandi ekki áður skráð sig á Rafrænni Fjallabyggð þarf að stofna nýjan aðgang með kennitölu viðkomandi einstaklings eða fyrirtækis og fá lykilorð sent í heimabanka umsækjanda. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Fræðslumál“ og “Menningarmál” er smellt á viðeigandi umsókn. Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana á Rafrænni Fjallabyggð og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.
Umsókn skal berast ekki síðar en kl. 24:00 þann 28. október 2020. Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Fjallabyggðar kveða á um. Þeir aðilar sem fengið hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfun þess fjár.