Þátturinn Egg, beikon og bakaðar baunir verður á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 30. maí kl. 8.00 að íslenskum tíma.

Það er Oskar Brown sem er umsjónarmaður þáttarins og hann ætlar að gera sitt besta til þess að skemmta hlustendum FM Trölla og gera alla tilbúna fyrir helgina. Tónlistin verður í aðalhlutverki eins og alltaf, kíkt verður á forsíður blaðanna og veðurspánna fyrir helgina, og ýmislegt fleira.

Þetta er síðasti þátturinn af EBB fyrir sumarfrí og Oskar þakkar hlustendum kærlega fyrir veturinn.

Endilega stillið á FM Trölla á morgun frá kl. 8-10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.