Bólusetningar barna 12-15 ára án undirliggjandi sjúkdóma.

Vegna fréttar sem birtist á vef Embættis landlæknis þann 28.6.2021 um bólusetningar barna vill HSN koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

HSN mun ekki boða þennan aldurshóp í bólusetningu. Foreldrar geta óskað eftir bólusetningu fyrir börn sín í gegnum heilsugæslustöðvarnar ef þau telja hana nauðsynlega en hún verður ekki framkvæmd fyrr en eftir sumarfrí, eftir miðjan ágúst.