Sunnudaginn 25. maí var dagur hinnar árlegu Siglfirðingamessu ásamt glæsilegu kaffisamsæti sem var að venju haldinn í Grafarvogskirkju. Aðsókn var með ágætum og áætlað er að mætt hafi liðlega 140 manns. Kökusendingarnar frá Aðalbakaríi voru einnig með glæsilegra móti og rann bakkelsið ljúflega ofan í gestina.
Messan hófst kl. 14.00 og kaffið um klukkutíma síðar eftir að formaðurinn Arna Rut Gunnlaugsdóttir ásamt undirrituðum hafði einnig örlitla aðkomu að messugjörðinni hafði boðið til sannkallaðs veislukaffis, en þar mættust margir sem höfðu ekki sést lengi og þurftu ýmislegt að ræða og rifja upp frá liðinni tíð eins og við mátti búast.
Messuna leiddi Siglfirðingurinn Hólmfríður Ólafsdóttir djákni, en fyrir þá sem ekki kveikja, þá er hún dóttir Ólafs Kristins Björnssonar (Óli Bubba) heitins og Kolbrúnar Símonardóttur. Hólmfríður (Hófí) er fædd og uppalin á Siglufirði en flutti suður um tvítugsaldurinn. Hún var einnig ræðumaður dagsins og gat þess meðal annars að
hún væri nú byrjuð að fikra sig aftur norður því núna væri hún flutt frá Reykjavík upp í Mosó.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá deginum og hefðu þær vissulega mátt vera mun fleiri, en sá sem þetta ritar og brá símanum sínum stundum á loft hefur það sér til afsökunar að hafa einnig upptekinn af öðrum þáttum varðandi þessa sálarnærandi og gleðigefandi samkomu sveitunga vorra.


















