Eins og kom fram á dögunum verður í ár ein stór grillveisla fyrir íbúa og gesti í upphafi Síldarævintýris, í stað minni hverfisgrilla. Gleðin verður á skólabalanum og hefst kl. 18.00 á fimmtudaginn.

Kjarnafæði, Kjörbúðin og Aðalbakarí leggja til pylsur, meðlæti og pylsubrauð. Þessum fyrirtækjum eru færðar bestu þakkir fyrir.

Gestir mega þó grípa með sér pylsur og brauð að heiman og leggja í púkkið.

Fjallabyggð mun leggja til stóla og borð en til að vera öruggur um sæti er gott að koma með sinn eigin stól!

Á skólabalanum er mikið af leiktækjum fyrir börnin og sparkvöllur og körfuboltavöllur svo börn á öllum aldri ættu að finna sér eitthvað til dundurs.