Á bæjarhátíð Siglufjarðar, Síldarævintýrinu sem verður haldið um Verslunarmannahelgina verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi.

Skiptingin á litahverfunum er eftirfarandi.

– Suðurbær, sunnan Skriðustígs, er rauður.
– Eyrin, neðan Túngötu er gul. 
– Brekkan, ofan Túngötu, frá Skriðustíg að Þormóðsgötu er græn.
– Norðurbær, utan Þormóðsbrekku er blár.

Íbúar bæjarins eru hvattir til að skreyta húsin sín.

Hægt er að fylgjast nánar með á facebook síðu Síldarævintýrisins