Siglufjörður mun iða af lífi í dag þegar fjölskylduhátíðin Trilludagar verður haldin.

Siglingar, grill og gleði á bryggjunni Siglufirði frá kl. 10:00-15:00

Trilludagar á Siglufirði eru svo sannarlega öðruvísi fjölskylduhátíð sem haldin er af Fjallabyggð í samvinnu við eldhressa trillukarla, Kiwanisklúbbinn Skjöld í Fjallabyggð sem annast flökun og grill á hafnarbakkanum, Slökkvilið Fjallabyggðar með aðstoð á bryggju, Björgunarsveitina Stráka sem annast gæslu á sjó og Unglingasveitina SmáDjarf í Fjallabyggð sem m.a. annast gæslu á landi.

Gestum hátíðarinnar er boðið að stíga um borð í bátana  og sigla út á fjörðinn þar sem rennt var fyrir fisk. Þegar í land er komið er fiskurinn grillaður og gestum boðið að smakka. Á bryggju standa kátir Kiwanismenn vaktina við flökun og á grillinu. Fiskurinn er svakalega góður og er hann borinn fram með salati. Í boði Kjörbúðarinnar verða grillaðar pylsur og boðið upp á dyrkki fyrir krakkana. 
Á bryggjunni verða hoppukastalar fyrir káta krakka og yfir daginn ómar tónlist á bryggjunni spiluð og leikin af heimamönnum og fjölmargir aðrir viðburðir víðs vegar um bæinn.

Frítt er á hátíðina.

Mynd/Vilmundur Ægir Eðvarðsson