Sigríður Hrund Pétursdóttir, forsetaframbjóðandi, verður á faraldsfæti um landsbyggðina næstu vikurnar.
Í þessum fyrsta legg hringferðar Sigríðar Hrundar mun hún heimsækja fjóra staði á Norðurlandi; Sauðárkrók, Siglufjörð, Dalvík og Akureyri. Þar kemur Sigríður Hrund til með að bjóða til kaffispjalls á opnum fundum og heimsækja vinnustaði þar sem fólki gefst tækifæri til að eiga beint og milliliðalaust samtal við hana um þau mál sem helst á því brennur.
Hittumst á heimavelli!
Sauðárkrókur
Miðvikudagur 13. mars
- kl. 17:00, Kaffi Krókur
Siglufjörður
Fimmtudagur 14. mars - kl. 12:00, Torgið
- kl. 18:00, Sigló Hótel
Dalvík
Föstudagur 15. mars - kl. 15:00, Kaffihús Bakkabræðra Gísli, Eiríkur, Helgi
Akureyri
Laugardagur 16. mars - kl.16:00, Mói Bistro, Hofi
Sunnudagur 17. mars - kl. 16:00, Ketilkaffi
- Verið öll hjartanlega velkomin. Skráning er óþörf.
Nánari upplýsingar veitir samskiptastýra Sigríðar Hrundar, Harpa Hjálmtýsdóttir, á netfanginu samskipti@sigridurhrund.is
Mynd/aðsend