íldarminjasafn Íslands hefur hlotið vottun fyrir þátttöku í CE4RT, verkefni um hringrásarhagkerfi fyrir nærandi ferðaþjónustu.

Hjá safninu er sjálfbærni ekki aðeins markmið, heldur grunnstoð allrar starfsemi þess. Lögð er áhersla á að skapa jákvæðar upplifanir þar sem gæði eru í fyrirrúmi fremur en magn.

Nærandi ferðaþjónusta snýst um að gefa til baka – að efla líf, menningu og samfélag á heimavelli. Safnið vinnur markvisst að því að stuðla að ábyrgri þróun sem styrkir bæði samfélagið, menninguna og efnahaginn í Fjallabyggð.

Síldarminjasafnið er stolt af því að vera hluti af CE4RT verkefninu og stefnir að áframhaldandi þátttöku í vegferð að sjálfbærari og öflugri framtíð fyrir ferðaþjónustu á svæðinu.