Matvælastofnun hefur opnað netspjall og reiknivél til að auðvelda dýraeigendum undirbúning innflutnings hunda og katta. Á netspjallinu er spurningum um inn- og útflutning hunda og katta svarað. Reiknivélin tekur mið af útflutningslandi og komudegi og birtir tímasetta áætlun um bólusetningar, sýnatökur og önnur heilbrigðisskilyrði. Jafnframt hafa leiðbeiningar á vef Matvælastofnunar verið uppfærðar og sett í þrep til að leiða innflytjendur í gegnum ferlið skref fyrir skref. 

Netspjallið er eingöngu birt á efnissíðum á vef Matvælastofnunar um inn- og útflutning hunda og katta og eingöngu sýnilegt á opnunartíma stofnunarinnar virka daga kl. 9-12 og 13-15. Inn- og útflytjendur sem hafa samband við stofnunina símleiðis verður vísað á netspjallið. Utan opnunartíma er hægt að beina fyrirspurnum um inn- og útflutning gæludýra á netfangið petimport@mast.is.

Ítarefni

Skoða á mast.is