Skila þarf haustskýrslu í Bústofni eigi síðar en 20. nóvember 2021

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2021 í Bústofni.

Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofni, eigi síðar en 20. nóvember.

  • Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu það er.
  • Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum og fyrningar, auk upplýsinga um aðra fóðuröflun og landstærðir.

Minnt er á að skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum í landbúnaði eru fullnægjandi skil á haustskýrslu. 

Skráning í Bústofn er með rafrænu skilríki eða Íslykli.


Mynd: Golli