Emil var vinsælasta fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en 42 drengjum var gefið nafnið Emil, næst vinsælustu nöfnin voru Viktor og Aron.

Embla var vinsælasta nafnið meðal nýfæddra stúlkna sem fyrsta eiginnafn, en 30 stúlkum var gefið nafnið Embla, þar á eftir voru nöfnin Aþena og Emma.

Hægt er að sjá nánara niðurbrot í Þjóðskrárgáttinni

Vinsælustu fyrstu eiginnöfnin 2022

Samanburður milli ára

Ef horft er á samanburð milli ára má sjá að drengjanafnið Emil tekur fyrsta sætið af Aron. Viktor tekur stökk frá þrítugasta sæti í annað sæti og Birnir hækkar verulega.

Hvað stúlkurnar varðar má sjá að Embla heldur fyrsta sætinu, í öðru sæti er Aþena sem hækkar um nokkur sæti og í því þriðja er Emma. Nafnið Lilja tekur hástökk á milli ára, fer úr 68. sæti í það fjórða.

Algengustu fyrstu eiginnöfnin

Algengustu fyrstu eiginnöfnin á landinu má sjá hér að neðan og er röðun nafna óbreytt á milli ára. Með algengustu fyrstu eiginnöfnin er átt við alla núlifandi Íslendinga. Fjöldatölur miðast við 22. mars 2023.

Heimild/Þjóðskrá
Mynd/pixabay