Í dag, miðvikudaginn 11. febrúar á milli 12.30 og 12.45 (fimmtán mínútur) mun símkerfi á öllum starfstöðvum HSN liggja niðri vegna tæknilegrar uppfærslu.

Fólki er bent á að alltaf er hægt að senda skilaboð eða óska eftir lyfjaendurnýjun á heilsuvera.is.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér. Í neyð skal alltaf hringja í síma 112.