Til að framkvæmd Landsmóts 50+ í Fjallabyggð dagana 27. – 29. júní gangi sem best þarf marga sjálfboðaliða því næg eru verkefnin.
Fyrirkomulag sjálfboðastarfsins er þannig að hver klukkustund er verðlögð og sjálfboðaliðinn getur síðan ánafnað félgi innan UÍF þeirri upphæð sem hann vann fyrir eða skipt henni á fleiri félög ef hann vill.
Þeim sem vilja taka að sér sjálfboðaliðastörf á mótinu er bent á að setja sig í samband við einhvern af keppnisstjórum mótsins en þeir eru: Dagný Finnsdóttir, Kristján Hauksson og Þórarinn Hannesson.