Heilbrigðisráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsókna þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars.
Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði sem og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítala. Að jafnaði starfa tæplega 700 manns á sjúkrahúsinu.
Hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í stöðuna til 5 ára. Nefndin starfar samkvæmt 39.gr.b. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Alls bárust 7 umsóknir um starfið og birtir heilbrigðisráðuneytið hér með nöfn og starfsheiti umsækjenda:
- Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Erla Björnsdóttir, settur forstjóri
- Guðjón Hauksson, forstjóri
- Gunnar Líndal Sigurðsson, verkefnastjóri
- Hermann Jóhannesson, flugvallastjóri
- Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri
- Snjólaug Svala Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri

