Um áramót tóku gildi ýmsar skattabreytingar er snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Áhrif þeirra eru metin til samtals 18 ma.kr. lækkunar á tekjum ríkissjóðs. Auk þess nema tímabundnir skattastyrkir í VSK til stuðnings vistvænum samgöngum og framkvæmdum við íbúðarhúsnæði o.fl. alls 13 ma.kr. á árinu. Hér verður fjallað um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa og öðrum skjölum málanna á vef Alþingis.
Tekjuskattur einstaklinga
Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Þessi seinni áfangi felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða því 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.
2020 | 2021 | |||
Prósenta í grunnþrepi | 35,04% | 31,45% | ||
Prósenta í miðþrepi | 37,19% | 37,95% | ||
Prósenta í háþrepi | 46,24% | 46,25% | ||
Á ári | Á mánuði | Á ári | Á mánuði | |
Þrepamörk upp í miðþrep | 4.042.995 | 336.916 | 4.188.211 | 349.018 |
Þrepamörk upp í háþrep | 11.350.472 | 945.873 | 11.758.159 | 979.847 |
Persónuafsláttur | 655.538 | 54.628 | 609.509 | 50.822 |
Skattleysismörk tekjuskattsstofns | 1.870.828 | 155.902 | 1.938.024 | 161.501 |
Skattleysismörk launa* | 1.948.779 | 162.398 | 2.018.775 | 168.230 |
* að teknu tilliti til lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð
Barnabætur
Um áramótin hækka neðri skerðingarmörk tekjustofns barnabóta. Skerðingarmörkin hjá einstæðum foreldrum hækka úr 3,9 m.kr. á ársgrundvelli í 4,2 m.kr., eða úr 325 þúsund kr. á mánuði í 351 þúsund kr. á mánuði. Það þýðir að fyrir einstætt foreldri sem hefur allar sínar tekjur af launavinnu og greiðir 4% skylduiðgjald í lífeyrissjóð er engin skerðing á barnabótum upp að 365.040 kr. í mánaðarlaun.
Hjá sambúðaraðilum munu neðri skerðingarmörkin hækka úr 7,8 m.kr. á ársgrundvelli í 8,4 m.kr., eða úr 650 þúsund kr. á mánuði í 702 þúsund kr. Það þýðir að fyrir sambúðaraðila sem hafa allar sínar tekjur af launavinnu og greiða 4% skylduiðgjald í lífeyrissjóð er engin skerðing á barnabótum upp að 730.080 kr. í samanlögð mánaðarlaun.
Efri skerðingarmörk haldast óbreytt við 5,5 m.kr. hjá einstæðum foreldrum og 11,0 m.kr. hjá sambúðarfólki. Í eftirfarandi töflu eru tekin dæmi af fjölskyldum með misháar tekjur og áhrifum barnabótabreytinga á ráðstöfunartekjur þeirra.
Barnabætur með tveimur börnum, öðru yngra en 7 ára | 2020 | 2021 | Breyting | |
kr. | kr. | kr. | % | |
Einstætt foreldri með 4,2 m.kr. í skattstofn á ári | 901.500 | 931.500 | 30.000 | 3,3% |
Einstætt foreldri með 5,5 m.kr. í skattstofn á ári | 771.500 | 802.700 | 31.200 | 4,0% |
Einstætt foreldri með 9 m.kr. í árstekjur | 433.000 | 451.720 | 18.720 | 4,3% |
Hjón með 8,4 m.kr. í skattstofn á ári | 593.700 | 653.700 | 60.000 | 10,1% |
Hjón með 9 m.kr. í árstekjur | 533.700 | 596.100 | 62.400 | 11,7% |
Hjón með 12 m.kr. í árstekjur | 246.700 | 284.140 | 37.440 | 15,2% |
Tryggingagjald
Í ársbyrjun 2021 mun skatthlutfall almenns tryggingagjalds lækka um 0,25 prósentustig, úr 4,9% í 4,65%. Er sú aðgerð tímabundin í eitt ár og hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa kórónaveirunnar.
Tryggingagjald í heild lækkar úr 6,35% í 6,10%, sbr. meðfylgjandi töflu.
Tryggingagjald | 2020 | 2021 |
Almennt tryggingagjald | 4,90% | 4,65% |
Atvinnutryggingagjald | 1,35% | 1,35% |
Gjald í Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota | 0,05% | 0,05% |
Markaðsgjald | 0,05% | 0,05% |
Tryggingagjald, samtals | 6,35% | 6,10% |
Fjármagnstekjuskattur
Þrenns konar breytingar á fjármagnstekjuskatti einstaklinga taka gildi í byrjun árs 2021. Frítekjumark er tvöfaldað og verða því fjármagnstekjur allt að 300 þús.kr. skattfrjálsar árið 2021, í stað 150 þús.kr. árið áður. Auk þess er sú breyting gerð að frítekjumarkið nær nú einnig til úthlutaðs arðs og söluhagnaðar hlutabréfa í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga. Þá er brugðist við misræmi í skattlagningu söluhagnaðar húsnæðis í eigu einstaklinga með því að fella söluhagnað af frístundahúsnæði til eigin nota undir sömu reglur og gilda um íbúðarhúsnæði en þó með kröfu um 7 ára lágmarks eignarhaldstíma.
Fjármagnstekjuskattur | 2020 | 2021 |
Skatthlutfall | 22% | 22% |
Frítekjumark einstaklinga | 150.000 | 300.000 |
Erfðafjárskattur
Skattfrelsismark erfðafjárskatts hækkar úr 1,5 m.kr. í 5 m.kr. í ársbyrjun 2021 og mun framvegis taka árlegri breytingu miðað við þróun vísitölu neysluverðs. Skatthlutfallið helst óbreytt frá fyrra ári.
Erfðafjárskattur | 2020 | 2021 |
Skatthlutfall | 10% | 10% |
Skattfrelsismark | 1,5 m.kr. | 5 m.kr. |
Framlenging heimilda til frestunar staðgreiðslu opinberra gjalda
Launagreiðendur geta sótt um frestun á allt að tveimur greiðslum vegna afdreginnar staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds af launum á árinu 2021. Nýr gjalddagi og eindagi þeirra greiðslna verður 15. janúar 2022.
Krónutölugjöld á eldsneyti, áfengi, tóbak o.fl.
Krónutölugjöld lækka að raungildi um næstu áramót en þau munu einungis hækka um 2,5% sem er minna en nemur verðbólgu frá síðustu verðlagsuppfærslu. Breytingar á helstu krónutölugjöldum milli áranna 2020 og 2021 eru sýndar í meðfylgjandi töflu.
Helstu krónutölugjöld | 2020 | 2021 |
Bensín- og olíugjöld (kr./ltr.) | ||
Almennt vörugjald á bensín | 28,75 | 29,45 |
Sérstakt vörugjald á bensín | 46,35 | 47,50 |
Olíugjald | 64,40 | 66,00 |
Kolefnisgjald | ||
Gas- og dísilolía (kr./ltr.) | 11,45 | 11,75 |
Bensín (kr./ltr.) | 10,00 | 10,25 |
Brennsluolía (kr./kg) | 14,10 | 14,45 |
Jarðolíugas (kr./kg) | 12,55 | 12,85 |
Bifreiðagjald (kr.)* | ||
Grunngjald bifreið < 3.500 kg. | 6.225/150 | 6.380/154 |
Grunngjald bifreið > 3.500 kg. | 58.325/2,49/91.800 | 59.785/2,55/94.095 |
Kílómetragjald (kr./km.) | ||
Kílómetragjald | (allir gjaldflokkar hækka um 2,5%) | |
Áfengisgjald (kr./cl.) | ||
Bjór | 125,65 | 128,80 |
Léttvín | 114,45 | 117,30 |
Sterkt vín | 154,90 | 158,75 |
Tóbaksgjald | ||
Vindlingar (kr./pk.) | 515,95 | 528,85 |
Neftóbak (kr./gr.) | 28,70 | 29,40 |
Annað (kr./gr.) | 28,70 | 29,40 |
*Sýnt er grunngjald á hvert ökutæki, einingagjald á hvert gr. umfram 121 gr. CO2og hámarksgrunngjald. Hér er miðað við skráða losun skv. evrópsku aksturslotunni. |
Virðisaukaskattur
Um síðustu áramót tóku gildi fjölbreyttir skattastyrkir sem hvetja til notkunar á vistvænum samgöngum. Var ýmist um að ræða framlengingu og aukningu á eldri úrræðum eða nýjar tegundir stuðnings. Þar má nefna niðurfellingu VSK í heild eða að hluta fyrir vistvæna bíla, bifhjól, reiðhjól og hlaupahjól; endurgreiðslu VSK af hleðslustöðvum; og loks stuðning við rekstraraðila sem fjárfesta í vistvænum ökutækjum, í formi fullrar fyrningar á kaupári fyrir hreinorkubíla og niðurfellds VSK við kaup á hópferðabílum og af útleigu bílaleigubíla. Þessir skattastyrkir gilda almennt út árið 2023 en þó aðeins út árið 2022 fyrir tengiltvinnbíla. Sjá má yfirlit um þessa skattastyrki í frétt hér á vefnum 30. desember 2019.
Í tilviki tengiltvinnbíla er framangreindur skattastyrkur felldur niður í skrefum á næstu árum. Sú breyting var þó gerð nú í desember að hámarks ívilnun á árinu 2021 verður óbreytt, 960 þús.kr., í stað þess að lækka í 600 þús.kr. eins og áður hafði verið lögfest. Um leið var gerð sú breyting á skilyrðum ívilnunarinnar að hámark heimilaðrar skráðrar losunar var lækkað um 10 gr.
- Tengill á gögn málsins á vef Alþingis (stuðningur við vistvæn ökutæki o.fl.).
- Tengill á gögn málsins á vef Alþingis (breyting á ívilnun fyrir tengiltvinnbíla 2021)
Auknar endurgreiðslur VSK vegna kórónuveirufaraldursins munu gilda út árið 2021 samkvæmt ákvörðun Alþingis fyrir jól. Þær felast annars vegar í hækkuðu endurgreiðsluhlutfalli vegna vinnu við íbúðarhúsnæði úr 60% í 100% og hins vegar í útvíkkun til ýmissa tegunda starfsemi og framkvæmda sem allajafna njóta ekki endurgreiðslu VSK (sjá töflu).
Tegund framkvæmda | Endurgreiðsla VSK af vinnulið 2021 |
Íbúðarhúsnæði: nýbyggingar og viðhald | 100% endurgreiðsla (hækkun úr 60%) |
Íbúðarhúsnæði: hönnun og eftirlit | 100% endurgreiðsla |
Íbúðarhúsnæði: frístundahúsnæði | 100% endurgreiðsla |
Heimilishjálp og regluleg umhirða heimila | 100% endurgreiðsla |
Bifreiðaviðgerðir einstaklinga | 100% endurgreiðsla |
Annað húsnæði sveitarfélaga | 100% endurgreiðsla |
Húsnæði almannaheillafélaga | 100% endurgreiðsla |