Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ föstudaginn 8. desember síðastliðinn á Sigló Hótel á Siglufirði. 

Það var Viðar Sigurjónsson sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ sem afhenti Jóni Garðari Steingrímssyni formanni félagsins viðurkenninguna að viðstöddum fjölmörgum stjórnarmönnum félagsins.  Á myndinni eru frá vinstri Kristján Þór Ingvason, Anna Lind Björnsdóttir, Jón Garðar Steingrímsson, Viðar Sigurjónsson, Sandra Finnsdóttir og Anna María Björnsdóttir.

„Það að vera félag í vexti með tilliti til iðkenda og umfangs, þýðir aukið flækjustig og fjölbreyttari áskoranir.  Það að vera Fyrirmyndarfélag með þeim kröfum sem slíkum félögum eru settar hefur það í för með sér að við getum mætt þessum kröfum á kerfisbundinn, faglegan og samræmdan hátt.  Þannig jöfnum við rétt og þjónustu við okkar félaga óháð bakgrunni þeirra“, sagði Jón Garðar formaður félagsins.

Mynd/Viðar Sigurjónsson